Brynjar Níelsson segist hættur að nota Facebook

Þingmaður Sjálfstæðisflokks segist óttast að samfélagsmiðlar séu farnir af hafa alvarleg áhrif á geðheilsu þjóðarinnar.

Brynjar Níelsson vill að fólk tali meira saman.
Brynjar Níelsson vill að fólk tali meira saman.
Auglýsing

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, seg­ist ætla að hætta að nota Face­book af heilsu­fars­á­stæð­um. Brynjar hefur verið mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðl­inum á und­an­förnum árum þar sem hann hefur sett fram skoð­anir á mönnum og mál­efn­um. Ummæli hans þar og skoð­ana­skipti hafa oft á tíðum ratað í frétt­ir. Brynjar er með hámarks­fjölda vina á Face­book og hefur náð meiri útbreiðslu með stöðu­upp­færslum sínum en flestir aðrir stjórn­mála­menn á und­an­förnum árum.

Í stöðu­upp­færslu sem Brynjar birti fyrir skemmstu segir hann að áður en hann hóf afskipti af stjórn­málum  haustið 2012 hafi hann ekki verið á sam­skipta­miðlum og lið­iði vel. „Mér var hins vegar tjáð að ekki þýddi að fara í stjórn­mál án þess að vera á fés­bók­inni, hið minnsta. Fés­bókin er kjör­inn vett­vangur til að koma áleiðis skoð­unum sín­um. Mér þykir vænt um alla 5000 vini mína og líka hina sem eru í mis­miklu jafn­vægi en hafa mikla þörf til að segja mér til synd­anna.

Sam­skipti á Fés­bók­inni eru vand­með­far­in. Kímni­gáfa og skop­skyn fólks er mjög mis­mun­andi og sumir bera lítið skyn­bragð á kald­hæðni og þekkja bara orðið úr orða­bók­um. Við­brögðin geta því verið ansi harka­leg og jafn­vel ógeð­felld. Einn góður vinur minn sagði að ég gæti lagað það að mestu með því að læra að nota alla þessa bros- og skeifukarla sem í boði eru.

Auglýsing

Ég ótt­ast að allir þessir sam­skipta­miðlar séu farnir að hafa alvar­leg áhrif á geð­heilsu þjóð­ar­inn­ar. Sýn­ist að fólk sé að mestu hætt að tala saman og einu sam­skiptin eru þegar verið er að sýna hvort öðru eitt­hvað í sím­an­um. Kannski ekki skrítið að geð­heil­brigði­mál sé mesta áskorun stjórn­mál­anna í nán­ustu fram­tíð.

Nú er svo komið að ég ætla, af heilsu­fars­á­stæð­um, að kveðja Fés­bók­ina ,að minnsta kosti í bili. Eig­in­konan mun gleðj­ast og kannski láta sjá sig aftur á meðal fólks og margir sam­flokks­menn mínir munu draga úr notkun róandi lyfja ef það er ekki orðið of seint. Kannski mun hin magn­aða póli­tíska hreyf­ing Pírata ná átt­um. Krafta­verkin ger­ast.

Ég mun örugg­lega sakna ykk­ar, kæru vinir en nú bíð ég bara eftir að ein­hver kenni mér að loka þessum fjanda.“

Áður en ég hóf afskipti af stjórnmálum haustið 2012 var ég ekki á sam­skiptamiðlum og leið bara fjandi vel. Mér var hins...

Posted by Brynjar Níels­son on Tues­day, Novem­ber 14, 2017




Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent