Stofnum ofbeldisvarnarráð og embætti umboðsmanns í Hafnarfirði

Efstu frambjóðendur Vinstri grænna í Hafnarfirði skrifa um áherslur sínar í komandi sveitastjórnarkosningum.

frambjóðendur VG í Hafnarfirði
Auglýsing

Við, Vinstri­heyf­ingin - grænt fram­boð í Hafn­ar­firði, leggjum áherslu á það í þessum kosn­ingum að á næsta kjör­tíma­bili verði stofnað ofbeld­is­varn­ar­ráð í Hafn­ar­firði. Með ofbeld­is­varn­ar­ráði er brugð­ist við útbreiddu kyn­bundnu ofbeldi sem virð­ist eiga sér stað alls staðar í okkar sam­fé­lagi. Hafn­ar­fjarð­ar­bær myndi þannig leggja sitt af mörkum til þess að upp­ræta kyn­bundið ofbeldi og þá marg­þættu kyn­bundnu mis­munun sem við­gengst í sam­fé­lag­inu.

#MeToo bylt­ingin hefur sýnt okkur svo ekki verður um villst að víða við­gengst kyn­bundið áreiti og ofbeldi og að því miður er enn langt í land með að upp­ræta það. Mjög brýnt er að bregð­ast við af fullri alvöru með skil­virkum hætti.

Öllum má vera ljóst að allt sam­fé­lagið þarf að taka ábyrgð á að breyta þeirri sam­fé­lags­gerð sem við búum í. Sveit­ar­fé­lagið á að taka for­ystu í þessum efnum og búa til vett­vang þar sem hægt er að vinna að þeim nauð­syn­legu þjóð­fé­lag­breyt­ingum sem kallað er eft­ir. Sveit­ar­fé­lag­inu ber að sporna gegn kyn­bundnu ofbeldi, klám­væð­ingu, man­sali og vændi og taka for­ystu í að vinna gegn skað­legum áhrifum staðalí­mynda t.d. með fræðslu í skólum og góðu for­dæmi. Bær­inn á líka að taka aukin þátt í rekstri þeirra félaga­sam­taka sem nú þegar vinna á þessum vett­vangi s.s. eins og Bjark­ar­hlíð, Dreka­slóð, Kvenna­at­hvarf og Stíga­mót. Íbúar Hafn­ar­fjarðar líkt og aðrir íbúar lands­ins leita aðstoðar hjá þessum sam­tök­um. Hafn­ar­fjörð­ur, sem þriðja stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins, á að sjálf­sögðu að aðstoða sína íbúa með því að taka þátt í rekstri slíkra úrræða og tryggja með því að slík úrræði standi þeim til boða. Fjár­fram­lög til slíkar sam­taka ætti að vera fastur liður í fjár­hags­á­ætlun hvers árs. Það er auk þess nauð­syn­legt fyrir slík úrræði að búa við öryggi og fyr­ir­sjá­an­leika í sínum rekstri til þess að geta þjón­u­stað umbjóð­endur sína sem best. Við leggjum einnig áherslu á að bær­inn taki mið af Ist­an­búl-­samn­ingnum (samn­ing Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir gegn ofbeldi gegn konum og heim­il­is­of­beldi) í starfi sínu.

Auglýsing

Vinna þarf gegn kyn­bundnum launa­mun og stuðla að auknum jöfn­uði kynja þegar kemur að náms- og starfs­vali, aðgengi að fjár­magni og ákvarð­ana­töku. Það munum við t.d. gera með kynj­aðri fjár­hags­á­ætl­un­ar­gerð.

Við Vinstri Græn viljum einnig setja á stofn emb­ætti umboðs­manns Hafn­firð­inga að fyr­ir­mynd Umboðs­manns borg­ar­búa í Reykja­vík. Á síð­asta kjör­tíma­bili lögðum við fram til­lögu þess efnis sem ekki fékk fram­göngu í stjórn­ar­tíð meiri­hluta sjálf­stæð­is­manna og full­trúa Bjartrar fram­tíð­ar.

Umboðs­maður Hafn­firð­inga er sjálf­stætt emb­ætti sem bæj­ar­búar og fyr­ir­tæki geta leitað til um leið­bein­ingar í sam­skiptum við sveit­ar­fé­lagið og fengið upp­lýs­ingar um stjórn­kerfið og ráð­gjöf vegna ein­stakra mála.

Þannig myndum við styrkja tengsl milli bæj­ar­búa og stjórn­kerfis Hafn­ar­fjarðar og stuðla að auknu réttar­ör­yggi íbúa í tengslum við stjórn­sýslu­fram­kvæmd og þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæj­ar.

Hægt verður einnig að fá álit umboðs­manns ef íbúar eða fyr­ir­tæki eru ósátt við máls­með­ferð og ákvarð­ana­töku bæj­ar­ins í málum þeirra. Hlut­verk umboðs­manns Hafn­firð­inga væri að leið­beina um mögu­legar kæru­leiðir og leið­beina um mögu­leika og heim­ildir til að mál verði tekin til end­ur­skoð­un­ar. Hlut­verk umboðs­manns væri líka að útskýra og aðstoða við túlkun á efn­is­legu inni­haldi ákvarð­ana­töku Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og jafn­vel að bjóða sátta­miðlun í þeim til­vikum sem líkur eru á að ágrein­ing megi sætta með slíkri aðkomu. Umboðs­maður myndi líka rann­saka ein­stök mál og skila áliti um lög­mæti þeirra og gæti tekið mál til athug­unar að eigin frum­kvæði.

Jafn­framt væri mik­il­vægt að umboðs­maður Hafn­firð­inga gæti tekið á móti, rann­sakað og komið á fram­færi upp­lýs­ingum frá starfs­fólki, við­semj­endum bæj­ar­ins og öðrum um rétt­ar­brot, van­rækslu eða mis­tök eða óeðli­leg afskipti kjör­inna full­trúa af málum í stjórn­sýslu og/eða þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæj­ar.

Gerum betur í Hafn­ar­firði.

Höf­undar sitja í tveimur efstu sæt­u­m VG í Hafn­ar­firði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar