Fjármálakerfið að komast á þann stað að áhættusækni er að aukast

Már Guðmundsson segir að það sé mikilvægt að söluferli Arion banka gangi vel. Áhættusækni sé að vaxa í íslensku bankakerfi og eftirlitsaðilar þurfi að sjá til þess að hún gangi ekki of langt.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að það sé nauð­syn­legt að Ísland fái banka­kerfi sem sé fjöl­breytt­ara varð­andi við­skipta­líkön og eign­ar­hald heldur en landið hafi í dag. „Ég held að allir séu sam­mála um það. Nú stendur fyrir dyrum að reyna að setja Arion banka í opið sölu­ferli og útboð. Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að það sé ferli sem sé gagn­sætt, að það sé eins mikið traust á því og er hægt og að það gangi vel. Vegna þess að það er allra hag­ur.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í sjón­varps­þætti Kjarn­ans sem frum­sýndur var á Hring­braut síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild hér að neð­an.

Már segir að jafn­vel þótt að íslenska ríkið sé ekki eig­andi að Arion banka þá sé það samt hag­hafi þegar kemur að sölu­ferli hans. „Við erum þarna með kerf­is­lega mik­il­vægan banka. Ákveð­inn hluti af greiðslu­miðl­un­inni fer þarna í gegn. Við erum með tryggðar inn­stæður og síðan er þetta auð­vitað líka ásýnd­ar­mál. Ef þetta gengur vel þá mun það hafa jákvæð áhrif á ásýnd Íslands.“

Auglýsing

Það sem Már seg­ist hafa meiri áhyggjur af nú um stundir af er að fjár­mála­kerfið sé að kom­ast á þann stað að áhættu­sækni innan þess sé að aukast. „Það er allt í lagi upp að vissu marki. En þá er það hlut­verk eft­ir­lits­að­il­anna að sjá til þess að það gangi ekki of langt, það er sótt á að þetta ger­ist mjög hratt. Og sjá til þess að sá við­bún­aður sem er til stað­ar­[...]að hann haldi. Að það sé ekki farið að bakka of langt út úr því þegar á reyn­ir.[...]Þarna mun reyna á.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent