Væri gott ef nágrannasveitafélögin settu meiri fjármuni í félagslegt húsnæði

Eyþór Arnalds vill frekar einbeita sér að því að hjálpa fólki úr þeirri stöðu að þurfa að þiggja félagslega aðstoð en að setja meira fé í málaflokkinn. Hann segir það ekki markmið að fólk festist í félagslegu húsnæði.

Auglýsing

Það væri mjög gott ef þau myndu veita meiri fjár­munum í þetta, en aðal­málið er hvað gerum við við pen­ing­anna,“ segir Eyþór Arn­alds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, þegar hann er spurður hvort að honum finn­ist að nágranna­sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar axli meiri ábyrgð á félags­legri þjón­ustu við íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Eyþór var gestur síð­asta sjón­varps­þáttar Kjarn­ans. Hægt er að sjá stiklu úr þætti vik­unnar í spil­ar­anum hér að ofan.

Eyþór segir að hlut­verk félags­lega kerf­is­ins eigi að vera númer eitt að hjálpa fólki aftur út í þjóð­fé­lag­ið. „Það er ekki end­an­legt mark­mið að fólk sé fast inni í félags­lega kerf­inu. Mér finnst stjórn­völd í Reykja­vík hafa staðið sig ágæt­lega í því að setja fjár­muni í þennan mála­flokk en það hefur ekki tek­ist að sinna fólk­inu þannig að það kom­ist aftur út. Það er eitt af því sem ég vil leggja áherslu á. Að fólk fái aftur tæki­færi til að kom­ast út úr þessu. Ekki að það séu fátækra­gildur sem geti orðið og að fólk sé fast inni í félags­legu hús­næði eða öðru. Í sumum til­vikum viljum við hjálpa fólki að eign­ast hús­næðið sem það býr í. Ég hef talað við bæði öryrkja og þá sem búa í félags­legum íbúð­um, og heyri að þeir búa við mikið óör­yggi frá Reykja­vík­ur­borg. Þó að mikið fjár­magn fari inn í þetta þá er óör­yggi til dæmis varð­andi leigu­samn­ing­anna. Þeir hækka fyr­ir­varð­ar­lítið og það er ekk­ert öryggi í þessum leigu­samn­ing­um.

Reykja­vík ber upp vel­ferð­ar­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

Um síð­­­ustu ára­­mót átti Reykja­vík­­­ur­­borg 2.445 félags­­­legar íbúð­­ir. Þeim var fjölgað um á annað hund­rað í fyrra. Til sam­an­­burðar áttu þau nágranna­sveita­­fé­lög höf­uð­­borg­­ar­innar sem koma þar næst, Kópa­vogur (436 félags­­­legar íbúð­ir) og Hafn­­ar­­fjörður (245 félags­­­legar íbúð­ir) sam­tals 681 félags­­­lega íbúð í lok árs 2016. Í Garðabæ voru á þeim tíma 35 slík­­­ar, 30 í Mos­­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­­ar­­nesi.

Auglýsing

Í Reykja­vík voru 19,7 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa í lok árs 2016 á meðan að þær voru 2,3 á hverja þús­und íbúa í Garða­bæ, 3,6 á hverja þús­und íbúa Sel­tjarn­ar­ness og 4,5 á hverja þús­und íbúa í Mos­fells­bæ. Þessar tölur komu fram í könnun sem vara­sjóður hús­næð­is­mála lét gera á stöð­unni. Nið­ur­stöður hennar voru birtar í ágúst í fyrra. Þar sagði einnig að ef fram­­boð ná­granna­sveit­­ar­­fé­lag­anna fimm ætti að vera sam­bæri­legt og það er í Reykja­vík, miðað við stöð­una í lok árs 2016, þyrfti að fjölga félags­legum leigu­í­búðum þeirra um 1.080.

Fjöldi þeirra sem þáði félags­lega aðstoð í Reykja­vík hefur dreg­ist umtals­vert saman á und­an­förnum árum. Árið 2013 þáðu 4.274 fjöl­skyldur slíka en árið 2016 var sá fjöldi 3.170. Þá voru þrjár af hverjum fjórum fjöl­skyldum sem þáðu fjár­hags­að­stoð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búsettar í Reykja­vík. Íbúar Reykja­víkur eru 57 pró­sent af íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Í fylgi­gögnum með nýbirtum árs­reikn­ingi fyrir árið 2017 kemur fram að fjár­hags­að­stoðar og hús­næð­is­stuðn­ings Reykja­vík­ur­borgar hafi áfram lækkað á því ári.

Hægt er að horfa á nýjasta þátt Kjarn­ans í heild sinni hér að neð­an:

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent