Veðjuðu rauðvínsflösku um hvort ríkisstjórnin myndi sitja út kjörtímabilið

Logi Einarsson heldur að ríkisstjórnin muni springa áður en kjörtímabilið er búið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir Trump-ás vera orðinn til í íslenskum stjórnmálum. Hún telur þó að ríkisstjórnin muni sitja ansi lengi.

Logi og ÞKG
Auglýsing

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur aldrei haft trú á því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur muni sitja út kjör­tíma­bil­ið. „Ég[...]hef enga trú á því að Vinstri græn treysti sér í að fara í kosn­ing­ar, og starfa í þess­ari rík­is­stjórn fram á síð­ustu stundu. Vegna þess að þau eru að verja mál­stað sem ég trúi ekki að þau trúi á. Ég trúi ekki á það að þau ætli að láta allar byrð­arnar í lægð­inni leggj­ast á veik­ustu hópanna. Ef að það er þá er þessi flokkur minna virði en ég hélt að hann væri.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, telur hins vegar að rík­is­stjórnin muni sitja ansi lengi og að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni gera allt sem hann getur til að halda henni sam­an. Það yrði líka mikil nið­ur­læg­ing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að enn ein rík­is­stjórnin sem hann situr í næði ekki að sitja út heilt kjör­tíma­bil, líkt og raunin hefur verið með síð­ustu þrjár stjórnir sem flokk­ur­inn hefur átt aðild að. „Ég held að þessi rík­is­stjórn muni sitja lengur og þreyja þorr­ann eins lengi og hún get­ur.“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Loga og Þor­gerði í þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur var síð­asta mið­viku­dag. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­in­um, þar sem þau ræða stjórn­mála­á­stand­ið, hér að neð­an.

Í þætt­inum er einnig rætt tölu­vert um mögu­lega blokka­myndun innan íslenskra stjórn­mála, í ljósi þess að íslenskt stjórn­mála­á­stand hefur umbreyst á örfáum árum. Nú eru til að mynda átta flokkar á þingi og ómögu­legt að mynda sterka tveggja flokka stjórn, sem var normið í íslenskum stjórn­málum ára­tugum sam­an.

Logi segir að sér hafi lengi þótt ákjós­an­leg sú til­hugsun að flokkar færu með­vit­aðri og upp­lýst­ari inn í kosn­ingar og gæfu kjós­endum sínum skýr­ari skila­boð um hvað þeir ætli að gera. „Ég tala um Vinstri græn – þó ég gagn­rýni þau í þess­ari rík­is­stjórn – sem mína póli­tísku nágranna. Þau eru það vissu­lega í mörgum mál­um. Og þau eru miklu nátt­úru­legri sam­starfs­að­ili Sam­fylk­ing­ar­innar heldur en Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ég held að þessi spenna sem er að hlað­ast upp, og hún mun birt­ast í þriðja orku­pakk­an­um, hún mun birt­ast í þung­ung­ar­rofs­mál­inu, kosn­inga­mál­inu, stjórn­ar­skránni, hún mun á end­anum leiða til þess að þetta springur í tætlur og þá fylkja sér auð­vitað saman þeir sem eru nátt­úru­legir banda­menn og geta stjórnað án þess að vera að gera mála­miðl­anir um lægsta sam­nefn­ara.“

Auglýsing
Þorgerður Katrín seg­ist að mörgu leyti sam­mála Loga. Hún segir tvo ása vera til staðar í íslenskum stjórn­mál­um. „Það er frjáls­lynd­i-ás­inn. Svo er íhaldsami-ásinn, en það má líka kalla hann Trump-ás­inn. Hann er birt­ing­ar­mynd þess sem ákveðnir flokk­ar, eða hópar innan ákveð­inna flokka, vilja standa frammi fyr­ir. Ég vona að íslenskir kjós­endur fari að átta sig á nákvæm­lega þessu. Það hefur oft verið gaman í póli­tík en þetta eru mjög áhuga­verðir og skemmti­legir tím­ar.“

Logi segir í þætt­inum að hann telji að það sé miklu meiri áhugi innan Vinstri grænna, jafn­vel innan þing­liðs flokks­ins, að skoða gjald­miðla­málin og velta fyrir sér hvort að Ísland eigi að taka upp nýjan gjald­mið­il. „Ég þyk­ist vita það af sam­tölum við þing­menn.“

Þor­gerður Katrín er ekki jafn viss og seg­ist upp­lifa að Vinstri grænum líð ótrú­lega vel í þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. „Það er alla­vega þannig að yfir­hönd­ina í Vinstri grænum hefur núna gamli arm­ur­inn.“

Í lok þátt­ar­ins gerðu for­menn­irnir með sér veð­mál um hvort rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur myndi sitja út kjör­tíma­bilið eða ekki. Þar lögðu þau undir góða rauð­víns­flösku og nýja rík­is­stjórn.

Hægt er að sjá þátt­inn í heild sinni hér að neð­an:

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent