Telur samfélagslega sátt um að styrkja barnabótakerfið

Halldór Benjamín Þorbergsson telur að ef lesið sé í þjóðarsálina þá sé styrking barnabótakerfisins lausn sem margir geti unað við. Það sé skynsamleg leið til að koma til móst við þá hópa sem standi höllustum fæti.

Halldór Benjamín Þorbergsson
Auglýsing

„Ég hef verið tals­maður þess að það að styrkja barna­bóta­kerf­ið, sem sann­ar­lega er verið að gera á þessu ári sam­kvæmt ein­hverju sem var ákveðið í fyrra. Að það sé mjög skil­virk leið til þess að koma pen­ingum í gegnum milli­færslu­kerfi á þann stað sem ég trúi að ríki sam­fé­lags­leg sátt um. Til þess að koma pen­ingum tíma­bundið til þeirra sem þurfa á því að halda.“

Þetta er meðal þess sem Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Þar ræddi hann meðal ann­ars stöðu mála í kjara­við­ræð­um, yfir­vof­andi verk­föll, launa­hækk­arnir rík­is­for­stjóra og útspil rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir lausn í við­ræðum vinnu­mark­að­ar­ins. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.



Hall­dór sagði að þeir hópar sem hin sam­fé­lags­lega sátt ríki um að eigi að fá auknar greiðslur í gegnum milli­færslu­kerfi sé ung fólk sem sé að koma sér upp fjöl­skyldu og er með ung börn á fram­færi. Ég held að ef maður les í þjóð­arsál­ina þá er þetta ein­hver laus sem mjög margir geta unað við og sé skyn­sam­leg til að koma til móts við þá hópa sem standa höllustum fæt­i.“

Auglýsing
Að hans mati er lausnin á yfir­stand­andi kjara­deilu ein­hvers­konar sam­sett lausn. „Einn hluti þess­arar lausnar snýr beint að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og varðar beinar launa­hækk­anir í sam­fé­lag­inu. Annar lið­ur­inn snýr að milli­færslu­kerfum okk­ar, þessum stóru kerf­um. Útspil rík­is­stjórn­ar­innar er þegar komið fram. Eigum við ekki að segja að við­brögð við því útspili hafi verið blend­in. Við­brögð mín, án þess að ég taki mér stöðu ann­að­hvort með verka­lýðs­hreyf­ing­unni eða stjórn­völdum með því, voru að þetta voru efn­is­lega það sem að hægt var að eiga von á út frá fyrri yfir­lýs­ing­um.“

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum hafi komið fram að lækka ætti tekju­skatt um eitt pró­sentu­stig. Það útspil sem nú sé komið fram sé efn­is­lega á þeim nót­um. „Ég hef spurt mig: hvaðan koma þær vænt­ingar að útspilið í tekju­skatts­kerf­inu hefði átt að vera tvisvar sinnum eða þrisvar sinnum meira að umfangi en kynnt er? Ég hef ekki séð að þær yfir­lýs­ingar stjórn­ar­flokk­anna. Að það megi lesa það út úr þeim yfir­lýs­ingum sem fram hafa kom­ið.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent