Valdboðsöfl farin að teygja sig inn í sjálft dómsvaldið

Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi verið að draga línu í sandinn með dómi sínum á þriðjudag. Það gangi ekki að framkvæmdavald krukki í dómsvaldi.

Eiríkur Bergmann
Auglýsing

„Þessi nið­ur­staða í Strass­borg hún kemur auð­vitað í sam­hengi við áhyggjur sem að margir hafa um þróun lýð­ræðis í Evr­ópu. Þar sem að stjórn­mála­menn, vald­boðs­öfl í stjórn­mál­um, eru farin að teygja sig sífellt lengra í að sölsa undir sig önnur svið rík­is­valds­ins. Ekki bara lög­gjaf­ar­valdið og fram­kvæmd­ar­vald­ið, heldur eru farnir að teygja sig inn í sjálft dóms­vald­ið. Sem á auð­vitað að vera sjálf­stætt frá öðrum vald­þátt­u­m.“

Þetta sagði Eiríkur Berg­­mann Ein­­ar­s­­son, pró­­fessor í stjórn­­­mála­fræði, um dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu og afsögn Sig­ríðar Á. And­er­sen úr emb­ætti dóms­­mála­ráð­herra í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, í þætt­in­um. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an.



Eiríkur sagði að þessi þró­un, þar sem vald­boðs­öfl væru að teygja sig inn í dóms­vald­ið, væri að eiga sér stað til dæmis í Ung­verja­landi og í Pól­landi og að það hafi leitt af sér vax­andi áhyggjur í Evr­ópu. „Með þessum dómi er verið að draga ein­hvers­konar línu í sand­inn og segja að það gangi ekki að fram­kvæmda­valdið sé að krukka í dóms­vald­inu með þeim hætti sem hérna er gert. Sér­stak­lega ekki þegar lögin hérna inn­an­lands heim­ila það ekki, eins og kemur fram í þessum dómi sem tekur auð­vitað mið af íslenskum lögum í þessu máli.

Ég held að það megi virða Sig­ríði And­er­sen það til vor­kunnar að nið­ur­staðan er svona afdrátt­ar­laus[...]það hefur með þessar áhyggjur manna að ger­a.“

Auglýsing
Eiríkur telur að það sé almennt ákveðið vanda­mál í íslenskum stjórn­málum að íslenskir stjórn­mála­menn upp­lifi að þeir séu ein­vörð­ungu í starf­semi hér inn­an­lands. „Að þeir séu ein­hvern veg­inn ekki hluti af stjórn­mála­heild Evr­ópu. En vita­skuld eru þeir það. Við erum bara óvön því að hugsa um íslensk stjórn­mál með þeim hætti. En það er ekki eitt­hvað sem íslenskir stjórn­mála­menn geta lengur leyft sér. Þeir verða að átta sig á því í hvaða ytra sam­hengi þeir fara fram í þeim ákvörð­unum sem þeir taka hér inn­an­lands. Það er sú síkvika hreyf­ing sem er einna áhuga­verð­ust í þessu máli finnst mér.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent