Mannréttindadómstóllinn verndar frelsi einstaklingsins fyrir ofríki ríkisvaldsins

Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður segist ekki sammála málflutningi um að fullveldi Íslands sé ógnað með nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Það komi á óvart að slík gagnrýni heyrist frá hægri, þar sem frelsi einstaklingsins er í hávegum haft.

Sigríður Rut Júlíusdóttir
Auglýsing

„Ætli það sé ekki meira póli­tísk ákvörðun og póli­tískt rök frekar en lög­fræði­leg sem liggja þarna að baki,“ sagði Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, lög­maður á Rétti, um þann vilja margra að áfrýja nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu til efri deildar dóm­stóls­ins.

Hún seg­ist þó ekki ætla í sjálfu sér ekk­ert að gagn­rýna það neitt harka­lega að fólk vilji áfrýja þessu þang­að. Fyrir því séu rök.

Sig­ríður Rut var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í lið­inni viku.

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.



Sig­ríður Rut sagði í þætt­inum að nú sé kannski kom­inn sá tíma­punktur fyrir Íslend­inga að fara betur ofan í það hvernig við viljum skipa dóm­ara og eftir hvaða kerfi það sé gert. „Fyrir mitt leyti er ég ekk­ert alls ósátt við kerfið eins og það var sett upp hefði því verið fylgt. Ég vil miklu frekar að hæf­is­reglur ráð dóm­ara­vali heldur en eitt­hvað ann­að.“

Hún nefnir Banda­ríkin sem dæmi þar sem slembival for­set­ans ræður því hverjir eru til­nefndir til dóm­ara­starfa. „Ég vil bara sjá hæf­asta ein­stak­ling­inn og ég vil bara vera sann­færð um að hæf­ustu ein­stak­ling­arnir séu valdir til að gegna stöðum dóm­ara í hvert sinn. Mér er alveg sama hvar í póli­tík­inni þessir dóm­arar eru. Mér er alveg sama hvort þeir séu hægri menn eða vinstri menn. Ég vil bara að þeir séu hæf­ir.“

Auglýsing
Talað hefur verið um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu, í ákveðnum kreðsum, sem ein­hvers konar árás á full­veldi Ísland. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Hæsta­rétt, er á meðal þeirra sem það hafa gert. Arnar Þór Jóns­son, dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur, kall­aði dóm­inn nýja teg­und óskapn­aðar í blaða­grein og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði að nið­ur­staðan hefði komið sér í opna skjöldu og kall­aði eftir umræðu um hvort Íslend­ingar hafi „fram­selt túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evr­ópu“.

„Ég er ekki sam­mála þessum rökum og þessum mál­flutn­ing­i,“ sagði Sig­ríður Rut. Hún benti á að þessi gagn­rýni virð­ist ein­ungis heyr­ast frá hægri. „Það finnst mér svo­lítið ein­kenni­legt vegna þess að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn öðrum fremur verndar frelsi ein­stak­lings­ins.[...]Það er verið að vernda frelsi ein­stak­lings­ins fyrir ofríki rík­is­valds­ins. Ég hélt að það væri yfir­skrift Sjálf­stæð­is­flokks­ins og kemur mér veru­lega á óvart sú orð­ræða sem mér finnst ýmsum emb­ætt­is­mönnum þjóð­ar­innar til vansa að við­hafa. Og ég deili ekki þeim áhyggjum að hér sé eitt­hvað um fram­sal á full­veldi í þessu skyni, hér er verið að vernda mann­rétt­indi. Ekk­ert ann­að.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent