Búin að finna kjallara undir botninum á siðferði í íslenskri pólitík

Þingflokksformaður Pírata segir að munurinn á ofteknum akstursgreiðslumálum þingmanna í Noregi og á Ísland sé að þar sem málið rannsakað og pólitísk ábyrgð tekin. Hér sé málið ekki rannsakað og pólitísk ábyrgð sé engin.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Auglýsing

„Núna upp­lifi ég það að það hefur tek­ist ein­hvern veg­inn að finna kjall­ara undir botn­inum á sið­ferði í íslenskri póli­tík þar sem það þykir ekki sið­legt að benda á skort á rann­sókn á grun­sam­legu athæfi og krefj­ast henn­ar. Að það sé ekki smart.“

Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, um þá nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis að hún hafi gerst brot­leg við siða­reglur með því að segja að rök­studdur grunur væri um að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefði dregið að sér fé.

Hún var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Þór­hildur Sunna bendir á að erlendis sé það refsi­verður verkn­aður að svíkja út opin­bert fé. „Það er talið refsi­vert og erlendis er það rann­sak­að. Tökum nýlegt dæmi um hana Heke Haukeland Liadal þar sem norska þingið hefur óskað eftir því að lög­reglan rann­saki meint fjár­svik. Við rann­sókn þings­ins á þeim greiðslum sem komu til hennar kom í ljós að hún gat ekki gert grein fyrir akstri 3.806 kíló­metra. Hún fékk ein­hverjar 200 þús­und krónur of mikið greidd­ar. Þetta hefur verið rann­sakað og hún hefur nú verið látin stíga til hlið­ar.“

Auglýsing
Í máli Ásmundar liggi hins vegar fyrir að hann hafi, tíu dögum fyrir sjón­varps­þátt­inn þar sem Þór­hildur Sunna lét ummælin falla, við­ur­kennt, eftir að gengið hafi verið á hann, að hafa þegið greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem fylgdi upp­tökum á sjón­varps­þætti ÍNN sem snérist um Ásmund sjálf­an. Ásmundur end­ur­greiddi þann kostn­að, alls 178 þús­und krónur í febr­úar 2018 eftir að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­fólki ÍNN“.

Þór­hildur Sunna segir að um sama verknað sé að ræða, hjá Ásmundi og Heke Haukeland Liadal. Og ef sá verkn­aður sann­ast þá sé hann refsi­verð­ur. „Er­lendis er hann rann­sak­aður og það er tekin póli­tísk ábyrgð. Hér heima er hann ekki rann­sak­aður og það er ekki tekin póli­tísk ábyrgð. Þú sérð það að for­sætis­nefnd vís­aði frá ósk um það að rann­saka akst­urs­greiðsl­urnar til hans. Ég hef verið að benda á að það sé eðli­legt að rann­saka þetta.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent