Molar - Vígbúnaðarkapphlaup, snilld frá Ohio og Max-kirkjugarðurinn

Í Molum að þessu sinni er fjallað um fjöl­breytt og ólík mál. Þar á meðal áhyggjur ýmissa af stöðu banka í Dan­mörku, þar sem nei­kvæðir vextir eru lík­legir til að setja bank­ana í erf­iða stöðu til lengdar lit­ið. Einnig er rætt um örv­un­ar­að­gerðir Seðla­banka Evr­ópu sem lík­legar eru til að koma fram á næstu miss­er­um.

Þá eru hlust­endur hvattir til þess að kynna sér hjómsveit­ina The National sem fagnar 20 ára afmæli um þessar mund­ir. Bandið kemur fram á tón­leik­um, í nágrenni umsjón­ar­manns Mola, í kvöld. The National kemur frá Ohio ríki, og hefur þró­ast og breyst mikið með árun­um. Síð­ustu plötur sveit­ar­innar hafa hlotið ein­róma lof gagn­rýnenda, en hljóm­sveitin sjálf lítur á sig sem tón­leika­band fyrst og fremst. The National hefur meðal ann­ars unnið með Ragn­ari Kjart­ans­syni lista­manni, svo ein­hver sé nefndur sem oftar en ekki er á stóra sviði lista í heim­inum og við Íslend­ingar þekkj­um.

Til umfjöll­unar er einnig vef­ur­inn PolitiFact sem fjallar mikið um alþjóða­stjórn­mál, og er veru­lega vand­aður og góður frétta­vef­ur. Hann hefur verið að sækja í sig veðrið og hlotið Pulitzer verð­laun fyrir umfjall­an­ir. Mikið hefur þar verið skrifað um víg­bún­að­ar­kapp­hlaup á norð­ur­slóð­um, sem nú er í kast­ljós­inu í aðdrag­anda heim­sóknar Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna.

Þá er fjallað um hús­næð­is­mál, bæði á lands­byggð og höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og sér­stak­lega áherslur stjórn­valda þegar kom að Lífs­kjara­samn­ing­un­um.

Fimmti mol­inn eru svo Max-á­hrifin á hag­kerf­ið, og komið inn á stóra Boeing 737 Max-­kirkju­garð­inn, eins og hann er nefnd­ur, hér á Was­hington svæð­inu.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023