Tæknivarpið – Ekkert bólar á HBO Max á Íslandi

HBO Max var að bæta við fimmtán Evr­ópu­löndum en Ísland er því miður ekki eitt þeirra sem eru sorg­ar­frétt­ir. Það þarf greini­lega að hitna enn frekar í streym­i­stríð­inu til þess.. Riot Games ætlar að halda risa­stórt raf­í­þrótta­mót á árinu og verður keppt í Valor­ant (sem er sam­runi Overwatch og Counter-­Stri­k­e).

Windows 11 er komið með nýja verk­efnastiku sem hentar betur spjald­tölv­um, en eng­inn af okkur er kom­inn á Windows 11. Talið er að næsta útgáfa af örgjörvum Apple verði M2 og fari í alla vega fjóra makka á þessu ári! En hvernig örgjörvi verður M2?

Nýr sam­fé­lags­mið­ill leit dags­ins ljós í vik­unni: Truth Social sem er væg­ast sagt gild­is­hlaðið heiti. Elden Ring er kom­inn út, lítur fár­an­lega vel út og fær frá­bæra dóma. Leik­ur­inn kemur frá leik­stjóra Dark Souls leikja­ser­í­unnar og er í boði á lang­flestum stýri­kerfum (nema macOS). Dragon Age 4 er víst hálfn­aður sam­kvæmt einum fram­leið­anda leiks­ins og er á leið­inni á næsta ári. Galaxy S22 dóm­arnir rigna inn og fær Ultra útgáfan glimr­andi dóma. Pixel 7 lekar eru byrj­aðir og það er ekki von á miklum breyt­ing­um.

Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elsk­um.

Stjórn­endur eru Atli Stefán og Elmar Torfa­son.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023