Þjóðhættir – Íslenskir fjárhundar og endurvinnsla textíls

Á ári hverju úthlutar Nýsköp­un­ar­sjóður náms­manna styrkjum til spenn­andi verk­efna. Síð­asta sumar styrkti sjóð­ur­inn hvorki fleiri né færri en 13 nem­endur við náms­braut í þjóð­fræði og safna­fræði til að vinna að fjöl­breyttum verk­efn­um.

Í þætt­inum verður fjallað um tvö þess­ara verk­efna, ann­ars vegar verk­efnið Hundgá og hins vegar verk­efnið End­urof­ið. Bæði verk­efnin sýna svo ekki verður um villst hvernig þjóð­fræði­efni og þjóð­fræði­rann­sóknir geta orðið upp­spretta nýsköp­unar og menn­ing­ar­miðl­un­ar.

Við­mæl­endur í þætt­inum eru tveir. Í fyrri hluta þátt­ar­ins ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Ingi­björgu Sædísi, meist­ara­nema í þjóð­fræði, sem segir frá verk­efn­inu Hund­gá. Verk­efnið gekk út á að safna sam­tíma­heim­ildum og sögum um íslenska fjár­hund­inn með því að taka við­töl við eig­endur og rækt­endur íslenska fjár­hunds­ins. Við­tölin verða varð­veitt í þjóð­fræð­isafni Árna­stofn­un­ar. Verk­efnið vatt upp á sig og Ingi­björg Sædís vann fimm innslög um íslenska fjár­hund­inn sem birt­ust í sumar í þátt­unum Sum­ar­mál á Rás 1.

Í seinni hluta þátt­ar­ins ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Álf­rúnu Pálma­dótt­ur, þjóð­fræði­nema, en hún og Ása Bríet Bratta­berg fata­hönn­un­ar­nemi unnu saman verk­efnið End­urof­ið. Verk­efnið gengur út á að skapa vað­mál fram­tíð­ar­innar úr fötum sem fólk er hætt að nota. Verk­efn­inu lauk með athygl­is­verðri sýn­ingu sem var haldin 12.-14. ágúst í sýn­ing­ar­rým­inu Flæði og vakti meðal ann­ars athygli út fyrir lands­stein­ana hjá aðstand­endum New York Textile Month.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023