Þjóðhættir – Þjóðhættir fyrr og nú

Frá því um 1960 hefur Þjóð­minja­safn Íslands safnað skipu­lega heim­ildum um lífs­hætti á Íslandi með því að semja spurn­inga­skrár og senda út til fólks. Þannig hafa feng­ist umfangs­miklar heim­ildir um líf lands­manna í gegnum árin. Í upp­hafi voru spurn­inga­skrárnar sendar bréfleiðis til heim­ild­ar­manna safns­ins en í seinni tíð eru þær einnig aðgengi­legar á net­inu fyrir fólk til að svara.

Nú er þjóð­hátta­safn Þjóð­minja­safns­ins aðgengi­legt á vefnum sarp­ur.is og þar getur fólk lesið svör úr þjóð­hátta­safn­inu og þannig kynnt sér ýmsa þjóð­hætti. Þar er einnig hægt að svara spurn­inga­skrám sem nú eru opnar og þannig getur fólk miðlað upp­lif­unum sínum til dæmis af lofts­lags­breyt­ingum og líf­inu á dögum kór­óna­veirunn­ar, eða deilt frá­sögnum af gælu­dýrum og laufa­brauðs­hefð­um. Safnið er haf­sjór af fróð­leik bæði um liðna tíð en einnig um sam­tíma­menn­ingu. Þjóð­hátta­söfnun er mik­il­vægur liður í því að varð­veita þekk­ingu um hvers­dags­menn­ingu á hverjum tíma þar sem fólk segir frá eigin reynslu og þekk­ingu.

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Ágúst Georg Ólafs­son þjóð­fræð­ing. Ágúst starf­aði við þjóð­hátta­safn Þjóminja­safns­ins til fjölda ára en lét af störfum um síð­ustu ára­mót. Því var til­valið að ræða við Ágúst um þjóð­hátta­safnið og sögu þess, líta yfir far­inn veg og fjalla um þær breyt­ingar sem hafa orðið á und­an­förnum árum í söfnun þjóð­fræði­efn­is.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023