Þjóðhættir – Alþýðuhefðir og grasalækningar á Íslandi

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Elsu Ósk Alfreðs­dóttur þjóð­fræð­ing. Elsa starf­aði um ára­bil sem kenn­ari við náms­braut í þjóð­fræði og kenndi meðal ann­ars nám­skeið um alþýðu­lækn­ingar og hátíðir og leiki. Hún hefur alltaf haft brenn­andi áhuga á þjóð­fræði, nátt­úr­unni, jurtum og fram­andi menn­ingu.

Elsa segir frá yfir­grips­mik­illi rann­sókn sinni á grasa­lækn­ingum á Íslandi. Hún segir frá alþýðu­hefðum í tengslum við lækn­inga­jurtir og hvernig sú hefð getur fylgt ákveðnum fjöl­skyld­um. Elsa tók við­töl við afkom­endur Grasa-Þór­unnar sem varð hálf­part­inn að þjóð­sagna­per­sónu vegna kunn­áttu sinnar á grasa­lækn­ingum og færni sem ljós­móð­ir. Grasa­lækn­inga­hefðir hafa þró­ast og breyst í gegnum árin og ræðir Elsa og hvernig hefð­irnar birt­ist okkur í sam­tím­anum en á und­an­förnum árum hefur orðið end­ur­vakn­ing í tengslum við nýt­ingu á grös­um. Einnig má sjá áhuga­verð átök um stöðu þekk­ingar í þessu sam­hengi, þar sem alþýðu­lækn­ingar eru skil­greindar út frá vest­rænum lækna­vís­ind­um.

Nýverið setti Elsa á fót heil­un­ar- og jurta­setrið Venus þar sem hún býður upp á höf­uð­beina- og spjald­hryggs­jöfn­un, nám­skeið og vinnu­stofur um jurtir og nátt­úru­lækn­ing­ar, þjóð­leg fræði og dul­speki.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023