Þjóðhættir – Hver kynslóð verður að uppgötva sagnaarfinn: bókmenntir, galdra og varúlfa

Aðal­heiður Guð­munds­dóttir er pró­fessor í íslenskum bók­menntum fyrri alda við íslensku- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Áður var Aðal­heiður dós­ent við þjóð­fræði­deild HÍ og kenndi meðal ann­ars kúrsa um ævin­týri, galdra og þjóð­sagna­fræði.

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Aðal­heiði um rann­sóknir hennar á mið­alda­bók­menntum og forn­alda­sög­um. Aðal­heiður hefur rann­sakað hvernig forn­alda­sagna­hefðin birt­ist í Evr­ópu og ákveðnar sögur eða sögu­brot sjást til dæmis á mynd- og rúna­stein­um, í kvæð­um, kirkju­list, sagna­dönsum og vegg­tepp­um. Þessar sög­ur, sem byggja á sam­eig­in­legri sagna­hefð, verða svo að bók­menntum hér á Íslandi.

Aðal­heiður segir einnig frá því hvernig hún hefur rann­sakað þjóð­fræði­efni í mið­alda­bók­mennt­um, meðal ann­ars minnið um vondu stjúp­una, galdra og álög. Þá segir hún frá var­úlf­um, eða ham­skiptaminn­inu sem er sívin­sælt jafnt meðal les­enda og fræði­fólks. Í íslenskum mið­alda­bók­menntum má finna þó nokkrar sögur af var­úlf­um, sem eru yfir­leitt karl­kyns, og segja þá frá dýr­inu innra með okkur sem brýst út við sér­stakar aðstæð­ur.

Nú á næst­unni eru vænt­an­legar þrjár bækur sem Aðal­heiður hefur unnið að. Þetta eru tvö fyrstu bindin í rit­röð­inni Arfur ald­anna, þar sem fjallað er um forn­alda­sög­urn­ar. Að auki er vænt­an­legt ritið Íslenskar bók­mennt­ir: Saga og sam­hengi. Aðal­heiður bendir á að mik­il­vægt sé að hampa ekki ákveðnum þáttum bók­mennta­sög­unnar á kostnað ann­arra og að hver kyn­slóð verði að fá að upp­götva arf­inn upp á eigin spýt­ur. Aðal­heiður ræðir einnig hvernig dæg­ur­menn­ing og kvik­myndir sækja inn­blástur sagna­arf­inn og mið­alda­bók­mennt­ir.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023